Tómstundirnar.
Tómstundir Gauja eru margvíslegar og verður reynt að skýra frá þeim helstu á þessari síðu. Eins og segir í kaflanum um Gauja sjálfan, þá hefur hann gaman af að gera við gamlar ljósmyndir og verður hér hægt að sjá ýmis sýnishorn af því sem hægt er að gera við skemmdar myndir. Einnig eru hér eintök af hinum margfrægu panorama ljósmyndum sem hann hefur sett saman úr allt að tíu mynda seríum.
Viðgerðir.
Hér fyrir neðan eru þrjú dæmi um nokkuð skemmdar myndir. Ef þið smellið á mynd, þá fáið þið að sjá hana stærri ásamt þeirri sömu eftir að búið er að laga hana.
Samsetning.
|
Hér til hægri eru tvær myndir sem Gaua var falið að sameina í eina. Til þess að sjá stærri útgáfu og árangurinn af því að sameina þessar tvær myndir, þá smellið á aðra hvora myndina hér til hægri. |
Panorama.
Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi um panorama ljósmyndir þær sem Gaui hefur verið að dunda sér við að setja saman úr myndum sem hann tekur á stafrænu myndavélina sína. Og hér gildir það sama og á hinum myndunum, að þær koma fram stærri ef smellt er á þær.
|
Ca. 350˚ útsýni frá Grundarmön.
|
|
Yfirsýn yfir Lárvaðal í Eyrarsveit. |
|
Yfirsýn yfir Grundarfjarðarbæ í Eyrarsveit. |