Hvað hefur Gaui að segja um sjálfan sig?
Ég
er sérvitur karlfuskur á sextugsaldri sem hefur gaman af lífinu og tilverunni.
Ég er búinn að vera trillukarl stærsta hluta starfsæfinnar og rak fyrirtæki í þeim bransa í samvinnu við Ægi
Má bróður minn og
Elis
Guðjónsson
föður minn. Fyrirtækið hét
Pétur Konn ehf í höfuðið á afa mínum
Pétri Konráðssyni, sem yfirgaf þessa jarðvist um páska árið
2000 og er hans sárt saknað. Reynsla hans og viska var ómetanleg hjálp í þessu
útgerðarbrölti okkar, sem stóð allt til ársins 2006 þegar fyrirtækið var selt.
Nú er ég slæpingi og hef yfirdrifið nóg að gera við að slæpast.
Áhugamál eru ekki ýkja mörg og er ég af sumum talinn eiga við vandamál að
stríða þar sem ég hef ekki áhuga á að horfa á enska boltann og Formúluna. Ég
aðhyllist frekar lestur góðra bóka og horfi helst á fréttir og fréttatengt efni,
auk breskra og danskra gamanþátta í sjónvarpinu. Ýmiskonar tölvuvinnsla er
einnig ofarlega á vinsældalistanum hjá mér og þá helst margskonar myndvinnsla.
ég hef gert mikið af því að skanna og laga gamlar ljósmyndir auk þess sem ég tek
mikið af stafrænum ljósmyndum. Einnig hef ég verið að læra heimasíðugerð og er
þessi heimasíða einhverskonar æfing í því námi. Auk þess tók ég í fjarnám hjá
tölvutækniskóla Íslands í tölvuviðgerðum og viðhaldi tölvukerfa. Því miður
virðist skólinn hafa gufað upp áður en ég náði að fá einhverja pappíra hjá þeim.
Af fjölskyldunni er þetta helst. Sjálfur bý ég að Grundargötu 70 ásamt henni Kæju minni sem ég kynntist á heilsuhæli í Stykkishólmi. Nú er fjölskyldan okkar orðin tólf manns.
Ég er með skrifstofu, eða hobbí herbergi á efri hæðinni að Grundargötu 29 í Grundarfirði. Ánæstu mynd sjáið þið útsýnið af þakinu þar. ( Smellið á hana til að fá stærri útgáfu )
Móðir mín Bára Bergmann Pétursdóttir býr á neðri hæðinni ásamt föður mínum Ella Guðjóns. Hún fer með mig út að ganga annað slagið til þess að viðra mig.
Elsti bróðir minn
Ómar Bergmann býr í Ástralíu ásamt konu sinni
Annette
og er tölvupóstfang þeirra
omarelisson@westnet.com.au . Ég er næst elstur og
Pétur Kristinn sá þriðji okkar bræðra,
bjó hér í
Grundarfirði ásamt konu sinni
Elzbietu og sonum
Gabríel og
Daníel.
Pétur lést árið 2008. Fósturbörn Péturs eru
Adrianna og
Pjotrek
og afabörn Adam og Erika Nótt, börn
Adriönnu. Næstur kemur svo áðurnefndur
Ægir Már, sem nú býr í Grafarvogi ásamt
eiginkonu sinni
Angelique (eingulík) og dætrum
Alexöndru Kristjönu og
Indiönu Rós. Yngst systkyna minna er
Sigríður Elísabet sem býr í Stykkishólmi ásamt
eiginmanni sínum
Hrannari Péturssyni og börnum þeirra
Arnari Má
og
Helenu
Björk. Sonur minn sem heitir Kristján og býr í
Reykjavík hefur þegar gert mig að afa, og nýlega hafa eldri sonur Kæju, Atli og
Unnur unnusta hans komið með lítinn afastrák, sem heitir Bjartur Ýmir og dóttir
Kæju, hún Anna Dís og Narfi unnusti hennar bættu svo einni lítilli prinsessu sem
heitir Vigdís í barnabarnasafnið.
Hér sjáiði mynd af afabarni mínu, sem heitir Iðunn Gígja Kristjánsdóttir (Smellið á myndina og kallið fram aðra). Hún er fædd þann 26 júlí árið 2000. Foreldrar hennar eru Kristján Guðjónsson( kristgud@li.is ) og Sonja Karen Marinósdóttir.
Ýmsar upplýsingar um heimabyggð mína er að finna á heimasíðunni Grundarfjordur.is .
Ægir Már staðinn að kvótasvindli!!
|
|

Guðjón Elisson
Grundargötu 29
350 Grundarfirði
Iceland
Sími: 438 6938
Skrifst: 438 6967
Gsm: 8931736